15febrúar

Frosin síða

ætla að gera smá tilraun með þetta blogg, en það virðist bara ekki birtast á síðunni eins og maður gerir ráð fyrir.  Er búin að senda fyrirspurn á stjórnendur en þeir hafa greinilega eitthvað allt annað að gera en að svara.Öskrandi Ef þetta fer ekki að ganga verð ég bara að finna mér annað svæði til að blogga á.
15. febrúar 2007 klukkan 17:26
Jóna Lind Karlsdóttir
Almennt
2 athugasemdir
13febrúar

Komin frá Osló

...já þá er helgarferðin að baki og allir orðnir spenntir að heyra um hana.  En þaðvar mjög gaman hjá okkur og sérstaklega að hitta vini okkar frá Ísafirði.  Það var töluvert skundað í búðir en lítið keypt...nema æðislega hvíta leður Nike skóGlottandi Við vorum á hóteli í hliðargötu við karl Jóhann sem var bara fínt búðarlega séð en verra næturlífslega séðÖskrandi enda var lítið sofið vegna tyrkneskrar tónlistar, beljandi bassa og svo kolvittlausra noskra unglinga sem héldu partý á herberginu beint fyrir ofan okkur báðar næturnar!!!  Svo fór brunabjallan af stað 7:30 á sunnudagsmorgun og allir ruku út en svo kom í ljós að eggjakakan hjá kokkinum hafði brunnið við.
En á meðan fólkið var að keppa á laugardaginn fórum við stelpurnar, Silja, Hekla, Edda og Arna, í bæjarrölt og fórum svo upp að konungshöllinni.  Ekki sáum við konginn né drottninguna en sáum aftur á móti skiptinguna hjá lífvörðunum sem var náttúrulega sýning út af fyrir sig.  Síðan tókum við T banan upp í Holmenkollen og skoðuðum pallinn og útsýnið yfir borgina.  Það var frábært enda veðrið mjög gott.  Á laugardagskvöldið fórum við fullorðnafólkið út að borða og fengum það besta kjöt sem ég hef borðað...dádýr mmmmmm.
Þegar við komum heim á sunnudaginn fórum við strax að flytja, það gekk bara vel enda fórum við bara í næsta hús en fengum stærri íbúð...þvílíkur munur.  Við erum búin að koma okkur fyrir og nú eru Hekla og Silja saman í herbergi en Edda Lind sefur inni hjá okkkur hjónum.  Í dag var ég svo myndarleg og bakaði smákökur, við erum að fara á foreldtrafund í skólanum hennar Silju og "alle jentenes foreldre tar med noe at bite i"...smákökurHlæjandi
Svo fer ég að setja fleiri myndir inn og teljarinnhjá mér er ekki að virka...nema að það sé engin að heimsækja migÞögull sem gröfin

13. febrúar 2007 klukkan 19:43
Jóna Lind Karlsdóttir
Almennt
1 athugasemd
08febrúar

Komin á nýjan stað

Vegna fjölda áskoranna þá var myndakerfið á hinni síðunni eki að gera sig þannig að ég ætla að prófa þessa.  Hér er svosem allt við það sama og rosalega kallt, -14 brrrrr.  Það er þvottadagur og svo förum við að hafa okkur til fyrir Osloarferðina á morgun.  Svo erum við að fara að flytja í stærri íbúð eftir helgi, Fagabergvegen 16 A,kem með ferðasöguna á mánudaginn
Ha'de bra, Jóna LindHlæjandi

08. febrúar 2007 klukkan 11:07
Jóna Lind Karlsdóttir
11 athugasemdir

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn